Heilbrigðisþjónusta, fræðsla og ráðgjöf
VEXVEL veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum sérhæfða þjónustu á sviði iðjuþjálfunar, hjálpartækja, velferðartækni, námskeiða og viðskiptaþróunar.

Heilbrigðis-þjónusta
Fjarheilbrigðisþjónusta iðjuþjálfa fyrir fullorðna sem þurfa aðstoð vegna hjálpartækja, sérútbúnaðar, aðlögunar eða breyttrar færni.
Þjónustan fer að jafnaði fram í fjarviðtali og er hægt að veita hana óháð búsetu þegar fjarþjónusta hentar viðkomandi máli.
Þjónustan getur meðal annars falist í:
- ráðgjöf vegna hjálpartækja
- undirbúningi og yfirferð umsókna
- faglegum rökstuðningi
- ráðgjöf vegna bílabreytinga og sérútbúnaðar
- aðlögun heimilis, vinnu og daglegra athafna
- ráðgjöf vegna tjáskiptatækni
- eftirfylgd með búnaði og lausnum
Námskeið og fræðsla
VEXVEL þróar og heldur hagnýt námskeið fyrir starfsfólk, stjórnendur og þjónustuaðila.
Áhersla er lögð á að þátttakendur geti nýtt þekkinguna beint í starfi. Námskeið eru aðlöguð að þörfum hvers hóps og geta farið fram í staðnámi eða fjarnámi.
Viðfangsefni geta meðal annars verið:
- velferðartækni og hjálpartæki
- þjónusta við fólk með stuðningsþarfir
- samskipti og fagleg vinnubrögð
- innleiðing nýrra lausna
- verkefnastjórnun og þjónustuþróun
- sérsniðin fræðsla fyrir vinnustaði og stofnanir
Ráðgjöf og samstarf
VEXVEL vinnur með fyrirtækjum og stofnunum að viðskiptaþróun, verkefnum og innleiðingu lausna á heilbrigðis- og velferðarsviði.
Verkefnin geta falist í:
- greiningu tækifæra og þarfa
- þróun nýrrar þjónustu
- leit að lausnum og samstarfsaðilum
- undirbúningi útboða og markaðskannana
- samskiptum við erlenda framleiðendur
- innleiðingu velferðartækni
- verkefnastjórnun og eftirfylgd
