Um VEXVEL



„Góð ráðgjöf verður til þegar fagleg reynsla og raunverulegar þarfir fólks mætast.“

VEXVEL byggir á reynslu úr heilbrigðis- og velferðargeiranum.

VEXVEL er ráðgjafar- og fræðslufyrirtæki sem hóf starfsemi í núverandi mynd árið 2025. Fyrirtækið er byggt upp af Stefáni Esekiel Hafsteinssyni, iðjuþjálfa, ráðgjafa og kennara með langa reynslu af heilbrigðis- og velferðarþjónustu, hjálpartækjum, velferðartækni, kennslu og innleiðingu lausna.

Starfið byggir á þeirri sýn að góð þjónusta verði til þegar fagþekking, skýr samskipti og raunverulegar aðstæður fólks eru teknar alvarlega. VEXVEL vinnur með stofnunum, fyrirtækjum, fræðsluaðilum og fagfólki sem vilja þróa þjónustu, efla þekkingu og nýta tækni á markvissan hátt.

Stefán býr í Barranquilla í Kólumbíu ásamt fjölskyldu sinni og starfar að stórum hluta í fjarvinnu með verkefnum á Íslandi. Sú staða hefur mótað vinnulag VEXVEL: skýr samskipti, góð eftirfylgni, traust samstarf og regluleg tengsl við íslenskt fagumhverfi.

Mynd, Stefán að prófa hjólastól á Rehacare í þýskalandi

Frá reynslu til ráðgjafar

Stefán er menntaður iðjuþjálfi með B.Sc. í heilbrigðisvísindum frá Háskólanum á Akureyri og MA-gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hann hefur starfað sem iðjuþjálfi, ráðgjafi, kennari og unnið með lausnir sem tengjast sjálfstæði, öryggi, þátttöku og gæðum í þjónustu. Þar hefur hann fengið innsýn í ólík sjónarhorn: þarfir notenda, daglegt starf starfsfólks, ákvarðanir stjórnenda og kröfur þeirra sem bera ábyrgð á þjónustu.

Reynslan sem hefur safnast í gegnum árin er grunnurinn að þeirri ráðgjöf, fræðslu og þjónustu sem VEXVEL veitir í dag.


Stefán E. Hafsteinsson

Stofnandi VEXVEL, iðjuþjálfi, ráðgjafi og kennari

Mynd: Brandur að prófa nýja iPad tjáskiptatölvu

Þegar tækni styður þátttöku

Ein af þeim lausnum sem hafa mótað sýn Stefáns á velferðartækni er tjáskiptatækni. Þar sést skýrt hvernig rétt þekking, réttur stuðningur og rétt lausn geta breytt möguleikum fólks til að tjá sig, taka þátt og hafa áhrif á eigið líf.

Þessi hugsun liggur að baki VEXVEL. Tækni á ekki að vera markmið í sjálfu sér. Hún á að styðja fólk, auðvelda starf, auka öryggi og skapa betri þjónustu.